Tilkynningar
Nefndadagur mánudaginn 30. nóvember
Mánudagurinn 30. nóvember er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi.
Við ákvörðun um fundatíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis en jafnframt tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefndanna.
Fundatafla
- Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd, velferðarnefnd
- Kl. 15–18: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á vef Alþingis.