Gagnleg vefföng
- EFTA
- Evrópusambandið (ESB)
- COSAC (Nefnd fulltrúa Evrópunefnda þjóðþinga aðildarríkja ESB)
- Evrópuþingið
Markmið, uppbygging og starfsemi þingmannanefndar EFTA
Þingmannanefnd EFTA (Committee of Members of Parliament of the EFTA Countries, CMP) var stofnuð árið 1977 og hafði það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherraráð EFTA. Umsvif og starfsemi nefndarinnar fór vaxandi þegar samningaviðræður hófust um Evrópska efnahagssvæðið (EES) árið 1989. Mikilvægi hennar jókst enn þegar EES-samningurinn tók gildi 1. janúar 1994, en fulltrúar nefndarinnar skipa EFTA-hluta hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EES.
Þingmannanefnd EFTA fjallar um starfsemi EFTA, gerð fríverslunarsamninga, málefni EES og ESB og efnahags- og viðskiptamál almennt, og hefur sem fyrr segir það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherraráð EFTA. Aðild að EFTA eiga nú Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss og sitja þjóðkjörnir fulltrúar þessara ríkja í þingmannanefnd EFTA. Þar sem Svisslendingar ákváðu að standa utan við EES varð þingmannanefnd EFTA að formi til tvískipt, með gildistöku EES-samningsins, þ.e. annars vegar upphaflega nefndin, með aðildarríkjunum fjórum, og hins vegar nefnd ríkjanna þriggja sem mynda EFTA-hluta EES (Members of Parliament of the EFTA States, MPS). Nefndirnar halda hins vegar ávallt fundi saman og því sitja Svisslendingar sem áheyrnarfulltrúar þegar rædd eru málefni sem eingöngu varða EES-hluta nefndarinnar. Sviss á einnig áheyrnaraðild að fundum hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EES. Til einföldunar er þó yfirleitt talað um fundi þingmannanefndar EFTA (EFTA Parliamentary Committee) þótt í raun sé um báðar nefndirnar að ræða, þ.e. eldri EFTA-nefndina og EES-hluta þingmannanefndarinnar.
Þingmannanefnd EFTA heldur fundi fjórum til fimm sinnum á ári. Fundir nefndarinnar eru yfirleitt haldnir í tengslum við fundi hennar með ráðherraráði EFTA og fundi hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EES sem eru haldnir tvisvar á ári. Í nefndinni eru 20 manns og þar af fimm frá Alþingi. Á milli funda hittist framkvæmdastjórn þingmannanefndarinnar, en hún gerir tillögur að dagskrá og verkefnum þingmannanefndarinnar, auk þess sem hún fjallar um aðkallandi mál. Í framkvæmdastjórn situr einn fulltrúi frá hverju EFTA-landi með atkvæðisrétt, en heimilt er einum fulltrúa til viðbótar frá hverju landi að sitja fundi án atkvæðisréttar. Frá Íslandsdeildinni hefur einn fulltrúi stjórnarandstöðu að jafnaði sótt fundi framkvæmdastjórnarinnar auk formanns. Þingmannanefnd EFTA hefur einnig samstarf við þingmenn frá samstarfsríkjum samtakanna, þ.e. þeim ríkjum sem EFTA hefur gert samstarfs- og fríverslunarsamninga við (svo sem ríki Mið- og Austur-Evrópu og ríki á Miðjarðarhafssvæðinu). Þessi þáttur í starfi EFTA fer vaxandi.
Sameiginleg þingmannanefnd EES (EEA Joint Parliamentary Committee, EEA JPC)
Þingmannanefnd EFTA vann ötullega að því, í samvinnu við Evrópuþingið, að í samningnum um EES væri gert ráð fyrir sameiginlegri þingmannanefnd (95. gr. samningsins). Í hinni sameiginlegu þingmannanefnd EES eru nú 24 þingmenn, 12 frá Evrópuþinginu og 12 frá EES-aðildarríkjum EFTA. Af þessum 12 fulltrúum á Ísland fjóra, Noregur sex og Liechtenstein tvo. Hin sameiginlega þingmannanefnd EES á að fylgjast með framkvæmd og þróun EES-samningsins og gefa álit sitt á EES-málum. Nefndin hittist tvisvar á ári, en framkvæmdastjórn hennar hittist á milli funda nefndarinnar. Í framkvæmdastjórninni sitja sex fulltrúar, einn frá hverju EES-aðildarríki EFTA og þrír frá Evrópuþinginu. EFTA-hluti hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EES og Evrópuþingið skiptast á um formennsku í nefndinni. Frá upphafi hefur hin sameiginlega þingmannanefnd EES haft frumkvæði að því að semja skýrslur um málefni sem hún hefur viljað skoða sérstaklega og eru þær svo ræddar á fundum nefndarinnar. Fyrir hverja skýrslu eru tilnefndir tveir framsögumenn, annar úr hópi EFTA-þingmanna og hinn úr hópi Evrópuþingmanna, og semja þeir jafnframt drög að ályktunum. Ályktanir sem samþykktar eru á grundvelli þessara skýrslna eru síðan sendar ráðherraráði EES, sameiginlegu EES-nefndinni, þingum EFTA-EES-ríkjanna, Evrópuþinginu og utanríkisviðskiptanefnd þess sem og Evrópunefndum þjóðþinga ESB. Með því að taka skipulega fyrir skýrt afmörkuð málefni hefur þingmannanefnd EES möguleika á að hafa áhrif á þróun EES-samningsins.