Samantekt um þingmál

Flutningur fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

684. mál á 152. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að auka og samhæfa þjónustu á vegum hins opinbera á sviði húsnæðismála.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að í stað Þjóðskrár Íslands verði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun falin verkefni sem varða skráningu og mat fasteigna. Með því fengist bætt yfirsýn yfir húsnæðismarkaðinn, betri þjónusta við sveitarfélög og byggingariðnaðinn og hagræðing í ríkisrekstri.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001.
Lög um Þjóðskrá Íslands, nr. 70/2018.
Lög um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019.
Lög um framkvæmd eignarnáms, nr. 11/1973.
Lög um stimpilgjald, nr. 138/2013.
Þinglýsingalög, nr. 39/1978.
Lög um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
Lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Lög um mannvirki, nr. 160/2010.
Lög um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002.
Lög um erfðafjárskatt, nr. 14/2004.
Jarðalög, nr. 81/2004.
Lög um Bjargráðasjóð, nr. 49/2009.
Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.
Lög um brunatryggingar, nr. 48/1994.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 28.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.