Samantekt um þingmál

Skipulagslög

573. mál á 152. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að einfalda stjórnsýslu við gerð skipulagsáætlana og útgáfu framkvæmdaleyfa vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lögfest verði heimild til að taka sameiginlega skipulagsákvörðun sem nái til einnar framkvæmdar vegna flutningskerfis raforku, þvert á sveitarfélagamörk. Gert er ráð fyrir að slík sameiginleg skipulagsákvörðun verði í höndum sérstakrar raflínunefndar sem skipuð verði fulltrúum allra þeirra sveitarfélaga sem viðkomandi skipulagsákvörðun á að ná til.

Breytingar á lögum og tengd mál

Skipulagslög, nr. 123/2010.
Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.
Lög um menningarminjar, nr. 80/2012.
Lög um mannvirki, nr. 160/2010.
  • Endurflutt: Skipulagslög, 275. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 151. þingi (11.11.2020)

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið að lögum er talið að áhrif á ríkissjóð verði óveruleg ef nokkur.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar




Síðast breytt 29.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.