Heiðurslaun listamanna

(1811100)
Allsherjar- og menntamálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
05.12.2018 23. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin afgreiddi breytingatillögu við fjárlög 2019 um skiptingu heiðurslaun listamanna. Allir viðstaddir nefndarmenn voru sammála tillögunni.
05.12.2018 22. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin ræddi málið.
04.12.2018 21. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin leitaði eftir umsögn frá nefnd skv. 2. mgr. 3. gr. laga um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012. Nefndin fór yfir umsögnina.
27.11.2018 18. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin fjallaði um veitingu heiðurslauna skv. lögum nr. 66/2012. Tekin var ákvörðun um að leita umsagnar hjá nefnd skv. 2. mgr. 3. gr. laganna um þá listamenn sem til greina kemur að njóti heiðurslauna Alþingis.