Reglugerð (ESB) nr. 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi
(1605094)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
26.02.2018 | 10. fundur utanríkismálanefndar | Reglugerð (ESB) nr. 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Á fund nefndarinnar komu Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir og Álfrún Perla Baldursdóttir frá utanríkisráðuneyti, Rósa Dögg Flosadóttir frá dómsmálaráðuneyti og Vigdís Eva Líndal frá Persónuvernd. Gestirnir gerðu grein fyrir gerðinni og svöruðu spurningum nefndarmanna. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um. |
06.02.2018 | 8. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Reglugerð (EB) nr. 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Nefndin fjallaði um málið. Samþykkt að afgreiða álit til utanríkismálanefndar, allir með en Jón Þór Ólafsson lætur vita ef hann verður á álitinu með fyrirvara. |
05.02.2018 | 7. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Reglugerð (EB) nr. 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Frestað að taka málið fyrir. |
24.01.2018 | 4. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Reglugerð (EB) nr. 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Á fund nefndarinnar komu Álfrún Perla Baldursdóttir og Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir frá utanríkisráðuneyti og Rósa Dögg Flosadóttir frá dómsmálaráðuneyti. Gestir kynntu málið og þær breytingar sem reglugerðin mun hafa í för með sér og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
07.03.2017 | 9. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Reglugerð (EB) nr. 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Á fundinn komu Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir og Steinlaug Högnadóttir frá utanríkisráðuneyti, Rósa Dögg Flosadóttir frá innanríkisráðuneyti og Helga Þórisdóttir og Vigdís Eva Líndal frá Persónuvernd. Gestir kynntu málið og þær breytingar sem reglugerðin mun hafa í för með sér og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
23.08.2016 | 78. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Reglugerð 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Nefndin afgreiddi álit sitt til utanríkismálanefndar. Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir álitinu. |
10.08.2016 | 74. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Reglugerð 2016/679 um persónuvernd og gagnaöryggi Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Rúnar Guðjónsson og Þorstein Gunnarsson frá innanríkisráðuneyti og Helgu Þórisdóttur frá Persónuvernd. Gestir viðruðu sjónarmið um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |