Aflandsfélög, hæfi ráðherra o.fl.
(1604001)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
14.04.2016 | 38. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Aflandsfélög, hæfi ráðherra o.fl. Á fundinn komu Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Hafsteinn Dan Kristjánsson og Særún María Gunnarsdóttir. Tryggvi gerði grein fyrir sjónarmiðum embættisins við málið og upplýsti að hann teldi ekki efni til frumkvæðisrannsóknar á hæfi forsætisráðherra á grundvelli þeirra upplýsinga sem hann hefði en sagði jafnframt að þörf væri á að beina sjónum að reglum um sem giltu á þessu sviði. Þá svaraði Tryggvi spurningum nefndarmanna. |
04.04.2016 | 36. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Aflandsfélög, hæfi ráðherra o.fl. Nefndin fjallaði um málið. Formaður gerði fimm mínútna hlé á fundi til kl. 12:45. Samþykkt tillaga um að boða umboðsmann Alþingis á fund nefndarinnar vegna málsins n.k. fimmtudag, sem verði opinn fjölmiðlum. |