Skýrsla Ríkisendurskoðunar um úthlutanir forsætisráðuneytis af safnliðum fjárlagaárin 2012-2014
(1406050)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
16.10.2014 | 8. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla Ríkisendurskoðunar um úthlutanir forsætisráðuneytis af safnliðum fjárlagaárin 2012-2014 Á fundinn komu Ragnhildur Arnljótsdóttir, Margrét Hallgrímsdóttir, Óðinn Helgi Jónsson og Ágúst Geir Ágústsson frá forsætisráðuneyti og Kristín Kalmansdóttir og Elísabet Stefánsdóttir frá Ríkisendurskoðun. Kristín fór yfir ábendingar Ríkisendurskoðunar í skýrslunni og Ragnhildur fór yfir athugasemdir og skýringar forsætisráðuneytis ásamt öðrum gestum frá ráðuneytinu. Þá svöruðu gestir spurningum nefndarmanna. Samþykkt að vekja athygli fjárlaganefndar á málinu. |
25.09.2014 | 4. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Úthlutanir forsætisráðuneytis af safnliðum fjárlagaárin 2012?14 Á fundinn komu Kristín Kalmansdóttir, Þórir Óskarsson, Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir og Elísabet Stefánsdóttir frá Ríkisendurskoðun. Kristín fór yfir skýrsluna ásamt því að svara spurningum nefndarmanna. |