Reglugerð ESB nr 391/2009 - eftirlit með skipum
(1309090)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
07.03.2017 | 8. fundur utanríkismálanefndar | Reglugerð ESB nr 391/2009 - eftirlit með skipum Formaður kynnti álit umhverfis- og samgöngunefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um. |
07.06.2016 | 52. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Reglugerð ESB nr 391/2009 - eftirlit með skipum Á fundinn komu Jóhanna Bryndís Helgadóttir frá utanríkisráðuneyti, Sif Guðjónsdóttir frá forsætisráðuneyti og Valgerður B. Eggertsdóttir frá innanríkisráðuneyti. Sif kynnti álitsgerð ráðuneytanna varðandi stjórnskipuleg álitaefni og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna. |