Skýrsla um frumgreinakennslu íslenskra skóla.
(1206005)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
25.03.2014 | 39. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla um frumgreinakennslu íslenskra skóla. Kristín Kalmansdóttir og Þórir Óskarsson frá Ríkisendurskoðun komu á fund nefndarinnar og ræddu svar mennta- og menningarmálaráðuneytis við fyrirspurn nefndarinnar og stöðu málsins. Í ljósi þess að ábendingum Ríkisendurskoðunar hefur verið mætt lagði formaður til að nefndin lyki umfjöllun sinni um málið. Var það samþykkt. |
11.03.2014 | 37. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Frumgreinakennsla íslenskra skóla - skýrsla Ríkisendurskoðunar. Formaður gerði nefndinni grein fyrir svarbréfi mennta- og menningarmálaráðuneytis um hvernig brugðist hefði verið við ábendingum í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Samþykkt að senda svarbréfið til Ríkisendurskoðunar og óska eftir afstöðu stofnunarinnar til þess. |
12.12.2013 | 24. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla Ríkisendurskoðunar um frumgreinakennslu íslenskra skóla. Formaður kynnti málið og lagði til að skrifað yrði bréf til mennta- og menningarmálaráðuneytis og óskað upplýsinga um það hvort ábendingum Ríkisendurskoðunar hefði verið mætt og þá hvernig sem og hvort setta hefðu verið reglur um frumgreinanám. Var það samþykkt. |