34. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 4. maí 2023 kl. 13:00


Mætt:

Diljá Mist Einarsdóttir (DME) 1. varaformaður, kl. 13:00
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 13:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 13:00
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 13:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 13:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 13:00

Bjarni Jónsson var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis. Þorgerður K. Gunnarsdóttir boðaði forföll. Birgir Þórarinsson og Jakob Frímann Magnússon voru fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

2003. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Fundargerðir 30.-33. fundar voru samþykktar.

2) Eldsneytisbirgðastöð Atlantshafsbandalagsins í Helguvík Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar kom Jónas Allansson frá utanríkisráðuneytinu.

3) 809. mál - framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2022 Kl. 13:15
Á fund nefndarinnar komu Steinunn Þóra Árnadóttir formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og Hildur Edwald ritari Íslandsdeildarinnar.

Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1158 frá 20. júní 2019 um jafnvægi milli vinnu og einkalífs í lífi foreldra og umönnunaraðila og niðurfellingu tilskipunar ráðsins 2010/18/ESB Kl. 13:30
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1807 frá 14. nóvember 2018 um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu Kl. 13:34
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

6) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 frá 30. maí 2022 um skipulag til reynslu fyrir markaðsinnviði sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni (DLT) og sem breytir reglugerðum (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) 909/2014 og tilskipun 2014/65/ESB. Kl. 13:38
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

7) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1152 frá 20. júní 2019 um gagnsæ og fyrirsjáanleg vinnuskilyrði í Evrópusambandinu Kl. 13:42
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

8) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1232 um tímabundna undanþágu frá tilteknum ákvæðum tilskipunar 2002/58/EB í þágu baráttu gegn kynferðilegu ofbeldi gegn börnum Kl. 13:47
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið.

9) Önnur mál Kl. 13:52
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:52