29. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 12. apríl 2018 kl. 08:35


Mættir:

Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 08:35
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 2. varaformaður, kl. 08:35
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 08:35
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 08:58
Olga Margrét Cilia (OC) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 08:35
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 08:35

Páll Magnússon og Jón Steindór Valdimarsson boðuðu forföll. Andrés Ingi Jónsson vék af fundi kl. 09:34.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:35
Fundargerð 28. fundar var samþykkt.

2) 442. mál - dómstólar o.fl. Kl. 08:45
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir frá dómsmálaráðuneyti og Sigurður Tómas Magnússon, formaður réttarfarsnefndar. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 458. mál - almenn hegningarlög Kl. 08:36
Á fund nefndarinnar kom Bryndís Helgadóttir frá dómsmálaráðuneyti sem kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 441. mál - skaðabótalög Kl. 09:16
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir frá dómsmálaráðuneyti og Eiríkur Jónsson, prófessor. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 345. mál - lögheimili og aðsetur Kl. 09:45
Á fund nefndarinnar kom Skúli Þór Gunnsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti sem svaraði spurningum nefndarmanna.

6) Önnur mál Kl. 09:54
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:54