154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2023.

698. mál
[16:01]
Horfa

Frsm. ÍVN (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2023. Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og kemur fram í nefndaráliti.

Með tillögunni er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd fjögurra ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 29.–30. ágúst 2023. Sú fyrsta er um hafið sem matarkistu okkar, önnur er um vestnorrænar næringarráðleggingar, sú þriðja er um að draga úr matarsóun og auka matvælaöryggi og sú fjórða um möguleika á auknu samstarfi í tengslum við lýðskóla.

Í greinargerð með tillögunni er þessum ályktunum ráðsins nánar lýst. Með ályktuninni um hafið sem matarkistu okkar eru leiðtogar ríkisstjórna og þjóðþinga landanna þriggja, þ.e. Íslands, Grænlands og Færeyja, hvattir til að útbúa heildræna áætlun um það hvernig vestnorrænu löndin geta unnið saman og staðið vörð um hafið sem matarkistu okkar og þannig komið í veg fyrir að auðlindir fari til spillis og um leið tryggt fæðuöryggi.

Með ályktuninni um vestnorrænar næringarráðleggingar eru ríkisstjórnir landanna hvattar til að kanna möguleika á að koma á sameiginlegum vestnorrænum næringarráðleggingum. Í þeim ráðleggingum yrði áhersla lögð á staðbundna matarmenningu og fæðu úr nærumhverfinu.

Með álykun um að draga úr matarsóun og auka matvælaöryggi eru vestnorrænir umhverfisráðherrar hvattir til að halda fund á árinu 2024 og skiptast á reynslu og hugmyndum um hvernig löndin geti dregið úr matarsóun og aukið matvælaöryggi á Vestur-Norðurlöndum.

Loks eru stjórnvöld hvött í fjórðu ályktuninni til að kanna möguleika á auknu samstarfi í tengslum við lýðskóla og athuga hvort nemendur slíkra skóla geti sótt styrk til uppihalds á meðan á slíku námi stendur. Með lýðskóla er hér átt við skólastig fyrir nemendur á aldrinum 14 til 18 ára.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, Jón Gunnarsson, Katrín Sif Árnadóttir, Logi Einarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þá lýsir Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, sig samþykkan álitinu.