154. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[11:17]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að geta þess, það kom ekki fram í framsögu minni, að þetta mál var ekki á þingmálaskrá ráðuneytis og ráðherra. Mál sem eru þar hafa einmitt farið í gegnum allan þann farveg sem hv. þingmaður vísaði hér til. Það er hins vegar mat okkar í ríkisstjórninni og ráðuneytinu að þetta mál sé brýnt og þess eðlis að ekki sé hægt að hinkra með það og mikilvægt að koma því hér inn í þingið til umfjöllunar sem fyrst. Vonandi verður hægt að bæta úr einhverju af því sem hv. þingmaður kallar eftir í þinglegri meðferð og ég efa ekki að það sé hægt.