Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1620, 154. löggjafarþing 1069. mál: tekjustofnar sveitarfélaga (Römpum upp Ísland).
Lög nr. 42 10. maí 2024.

Lög um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (Römpum upp Ísland).


1. gr.

     Í stað orðanna „50 millj. kr. árlega á árunum 2022–2025“ í ákvæði til bráðabirgða XXVI í lögunum kemur: 100 millj. kr. á árinu 2024.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 30. apríl 2024.