Ferill 860. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1594 — 860. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra.
1. Hverjar eru lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
Eftirfarandi tafla sýnir árlegan kostnað við lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins árin 2021–2023.
Skipuð | 2021 | 2022 | 2023 | |
Vísindasiðanefnd | 2023 | 69.129.688 | 77.219.208 | 60.303.020 |
Stöðunefnd lækna | 2022 | 2.244.347 | 2.188.187 | 2.483.205 |
Stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar | 2022 | |||
Notendaráð heilbrigðisþjónustu | 2022 | |||
Teymi sérfræðinga um börn sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni | 2022 | |||
Sóttvarnaráð | 2021 | |||
Lyfjanefnd Landspítala | 2021 | |||
Samstarfsnefnd um sóttvarnir | 2020 | |||
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins | 2020 | 11.896.616 | 13.661.242 | 13.661.317 |
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Vesturlands | 2020 | 1.397.978 | 1.385.338 | 1.569.523 |
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Vestfjarða | 2020 | 239.747 | 125.587 | 105.583 |
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Norðurlands | 2020 | 3.231.318 | 2.997.517 | 3.019.581 |
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Austurlands | 2020 | 547.436 | 387.169 | 442.616 |
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands | 2020 | 2.257.675 | 2.631.138 | 2.438.264 |
Færni- og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurnesja | 2020 | 678.146 | 565.241 | 1.025.206 |
Sameiginlegur tölvukostnaður allra færni- og heilsumatsnefnda á landinu | 5.675.053 | 6.146.755 | 6.705.302 | |
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana | 2021 | 2.761.099 | 1.672.350 | 2.589.195 |
2. Hvaða aðra starfshópa og nefndir hefur ráðherra sett á laggirnar og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
Í eftirfarandi töflu eru upplýsingar um alla starfshópa og nefndir sem ráðherra hefur skipað frá árinu 2021, jafnt tímabundnar sem varanlegar nefndir. Upplýsingar um árlegan kostnað vegna nefnda sem skipaðar hafa verið árið 2024 liggja ekki fyrir.
Skipuð | 2021 | 2022 | 2023 | Athugasemdir | |
Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna | 2024 | Endurskipuð frá mars 2024 | |||
Undirbúningshópur um stofnun EMT-sveitar | 2024 | ||||
Starfshópur um áfengis- og vímuvarnastefnu | 2024 | ||||
Starfshópur um kortlagningu sjálfvirkra stuðtækja | 2024 | ||||
Starfshópur nýrrar sjálfsvígsforvarnaáætlunar | 2024 | ||||
Starfshópur um húsnæðismál endurhæfingarstofnana | 2024 | ||||
Samráðshópur um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum til fimm ára | 2024 | ||||
Starfshópur um framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem búa við ofbeldi | 2024 | ||||
Starfshópur um almenna líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum | 2023 | ||||
Nefnd um grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi | 2023 | ||||
Vinnuhópur um gerð draga að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma | 2023 | Lauk störfum 13. mars 2024 | |||
Geðráð | 2023 | 743.829 | |||
Starfshópur um framtíð læknisþjónustu á Íslandi | 2023 | ||||
Starfshópur vegna starfshlutfalls ljósmæðra | 2023 | ||||
Starfshópur um stefnu í skaðaminnkun | 2023 | ||||
Starfshópur um stefnu í munnheilsu á Íslandi til ársins 2030 | 2023 | ||||
Verkefnahópur um mönnunarviðmið í hjúkrun | 2023 | ||||
Starfshópur um þjónustu talmeinafræðinga | 2023 | ||||
Starfshópur sem á að skýra og samræma fyrirkomulag varðandi aðkomu heilbrigðisstarfsmanna, þegar kemur upp grunur um kynferðisofbeldi í garð barna | 2023 | Lauk störfum 6. nóv. 2023 | |||
Starfshópur til að fylgja eftir tillögum í greinargerð starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um yngra fólk á hjúkrunarheimilum | 2023 | ||||
Verkefnahópur um fyrirkomulag við gerð kerfiskennitalna/gervikennitalna | 2023 | ||||
Starfshópur um verkefnið Öflug sjúkrahúsþjónusta í dreifbýli | 2023 | Lauk störfum 18. okt. 2023 | |||
Starfshópur um heildarendurskoðun laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 | 2023 | ||||
Fagráð Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar | 2022 | ||||
Starfshópur um leiðir til að jafna aðgang að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu | 2022 | Lauk störfum 13. júlí 2023 | |||
Stýrihópur um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir og heilbrigðistæknilausnir við veitingu heilbrigðisþjónustu | 2022 | ||||
Starfshópur um fyrirkomulag vegvísunar í heilbrigðiskerfinu | 2022 | Lauk störfum 14. apríl 2023 | |||
Starfshópur um aðgerðir til varnar útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería | 2022 | ||||
Vinnuhópur sem falið er að endurskoða lög um geislavarnir, nr. 44/2002, í heild sinni | 2022 | ||||
Starfshópur um framtíðarsýn húsnæðis geðþjónustu á Landspítala | 2022 | 1.118.781 | Lauk störfum 1. mars 2023 | ||
Verkefnastjórn um innleiðingu verklags vegna liðskiptaaðgerða | 2022 | Lauk störfum 1. nóv. 2023 | |||
Starfshópur um aukna lyfjafræðilega þjónustu í apótekum, hvítbók og tillögur | 2022 | ||||
Endurhæfingarráð | 2022 | ||||
Vinnuhópur um endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila | 2022 | 2.968.000 | Lauk störfum 15. des. 2023 | ||
Starfshópur um útgáfu vottorða samkvæmt reglugerð á grundvelli 19. gr. laga nr. 34/2012 | 2022 | Lauk störfum 22. jan. 2023 | |||
Samráðshópur um sjúkraflug, samkvæmt tillögu starfshóps frá 2018, um aukna aðkomu þyrlna að sjúkraflugi | 2022 | Lauk störfum 10. okt. 2023 | |||
Starfshópur um endurskoðun refsiábyrgðar heilbrigðisstarfsfólks | 2022 | Lauk störfum 17. feb. 2023 | |||
Samráðshópur um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 | 2022 | ||||
Starfshópur um afglæpavæðingu neysluskammta | 2022 | ||||
Vinnuhópur um samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu | 2022 | Lauk störfum 15. maí 2023 | |||
Starfshópur til að greina mál yngri einstaklinga á hjúkrunarheimilum | 2022 | Lauk störfum 8. jan. 2023 | |||
Starfshópur um offitu, holdafar, heilsu og líðan | 2021 | Lauk störfum 22. feb. 2024 | |||
Vinnuhópur um framkvæmd COVID-19 bólusetningar 2021–2023 | 2021 | Lauk störfum í júní 2023 | |||
Starfshópur vegna reglugerðar um leyfi til notkunar lyfja af mannúðarástæðum | 2021 | Lauk störfum með birtingu reglugerðar 12. apríl 2023 | |||
Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu | 2021 | 3.267.846 | 6.562.257 | 7.667.855 | |
Starfshópur um heildarendurskoðun á eftirlitsákvæðum laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu | 2021 | Lagður niður 27. sept. 2023 | |||
Viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu | 2022 | Lauk störfum 20. des. 2022 | |||
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra | 2022 | 1.275.408 | Lauk störfum 21. nóv. 2022 | ||
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu | 2021 | 1.682.374 | Lauk störfum 1. mars 2021 | ||
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu | 2021 | 1.135.742 | Lauk störfum 2. júlí 2021 | ||
Samráðshópur til að fjalla nánar um afstöðu notendahópa til mögulegra breytinga á lögum um réttindi sjúklinga hvað viðkemur beitingu nauðungar á heilbrigðisstofnunum | 2022 | Lauk störfum 30. des. 2022 | |||
Verkefnahópur um aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu | 2022 | Lauk störfum 22. des. 2022 | |||
Þverfaglegur starfshópur vegna reglu- gerðar um bótaskylda atvinnusjúkdóma |
2021 | Lauk störfum 25. nóv. 2022 | |||
Vinnuhópur um myndgreiningarþjónustu | 2022 | Lauk störfum 10. júní 2022 | |||
Starfshópur sem hefur það verkefni að vinna heildstæðar tillögur um þjónustu talmeinafræðinga við börn | 2021 | Lauk störfum 19. maí 2022 | |||
Stýrihópur til að halda utan um framgang þeirra aðgerða sem starfshópur um geðrækt í skólum skilaði af sér | 2021 | Lauk störfum 6. apríl 2022 | |||
Starfshópur um stofnun þverfaglegrar og ráðgefandi siðanefndar um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu | 2021 | Lauk störfum 4. apríl 2022 | |||
Stýrihópur vegna innleiðingar DRG í íslenska heilbrigðiskerfinu | 2021 | Lauk störfum 5. maí 2022 | |||
Stýrihópur sem vaktar óbein áhrif COVID-19 á lýðheilsu | 2021 | Lauk störfum 7. feb. 2022 | |||
Starfshópur sem falið er að skrifa drög að nýjum heildarlögum um sóttvarnir | 2021 | Lauk störfum 31. jan. 2022 | |||
Starfshópur um COVID-greiningar | 2021 | Lauk störfum 10. júlí 2021 |
3. Hefur ráðherra skoðað að leggja niður nefndir? Ef svo er, hvaða nefndir?
Nefndir og starfshópar sem ráðherra skipar tímabundið til ákveðinna verka eru lagðar niður þegar þær hafa lokið störfum. Af lögbundnum nefndum er áformað að leggja niður sóttvarnaráð samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga sem nú liggur fyrir Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu verður skipað nýtt fjölskipað stjórnvald, þ.e. farsóttanefnd.