Ferill 772. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 1590 — 772. mál.
Leiðrétt undirskrift.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimild).
Frá velferðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, ÖBÍ – réttindasamtökum og Landssamtökunum Þroskahjálp.
Nefndinni bárust tvær umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Lagt er til að við 8. gr. bætist reglugerðarheimild til handa ráðherra til að kveða á um stoðþjónustu, svo sem um aðstoðarmannakort fyrir fatlað fólk og um fæðisfé starfsfólks sem matast með notanda í störfum sínum. Með 2. gr. er lögð til sú breyting á 40. gr. laganna að við bætist heimild til að setja reglugerðir um framkvæmd þjónustu er varðar stuðningsfjölskyldur, frístundaþjónustu, styrkveitingar og um framkvæmd stoðþjónustu.
Markmið frumvarpsins er að stuðla að auknu jafnrétti í þjónustu við fatlað fólk. Telur nefndin mikilvægt að ráðherra fái þær heimildir til að setja reglugerðir sem kveðið er á um í frumvarpinu með það fyrir augum að tryggja jafnræði fatlaðs fólks og ófatlaðs, óháð búsetu eða þjónustuformi.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 26. apríl 2024.
Steinunn Þóra Árnadóttir, form., frsm. |
Líneik Anna Sævarsdóttir. | Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. |
Óli Björn Kárason. | Bryndís Haraldsdóttir. | Jóhann Páll Jóhannsson. |
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir. | Guðmundur Ingi Kristinsson. | Ásmundur Friðriksson. |